Kuldameðferð (-140 °C)
Betri heilsa. Hraðari endurheimt.


Verð frá 2.990kr
 2-4 mínútur 

Kuldameðferð (e. cryotherapy) getur haft margvísleg góð áhrif á heilsu og líðan.

Sýnt hefur verið fram á margvíslegan ávinning af kuldameðferð. Flestir finna strax fyrir jákvæðum áhrifum á borð við vöðvaslökun, hressandi áhrif, orkuaukningu og frískleika.

Eitt erum við alveg viss um... okkur líður aldrei betur né höfum meiri orku en eftir hressandi kuldameðferð.

Stakur tími: 3.900kr

5 tíma kort: 15.900kr

10 tíma kort: 29.900kr


Bóka tíma​​

Kaupa 5 tíma kort​​

Kaupa 10 tíma kort​​

​​

​Hvað er kuldameðferð?

Cryotherapy eða kuldameðferð þýðir einfaldlega meðferð í miklum kulda. 

Hún fer fram í klefa sem er kældur niður í -140°C og meðferðin varir í 2-4 mínútur.

Af hverju ætti ég að fara í kuldameðferð?

Sýnt hefur verið fram á margvíslegan ávinning af kuldameðferð. Flestir finna strax fyrir jákvæðum áhrifum á borð við vöðvaslökun, hressandi áhrif, orkuaukningu og frískleika. 


Kuldameðferðin getur aukið losun endorfíns í líkamanum og þar með gefið okkur aukna vellíðan og orku. Áhrifanna gætir yfirleitt í 6-8 klst eftir meðferð. Margir finna einnig fyrir bættum svefngæðum eftir kuldameðferð.


Önnur rannsökuð áhrif af kuldameðferð eru til dæmis aukið insúlínnæmi, hraðari efnaskipti og aukinn fitubruni.

Þarf ég að fara í sturtu fyrir og eftir kuldameðferð?

Nei, það er ekki þörf á því. Kuldameðferðin fer fram í þurrum klefa og þú hvorki svitnar né blotnar.


Hverju ætti ég að klæðast í kuldameðferð?

Mælt er með sundfatnaði eða nærfatnaði í kuldameðferðinni. Gott er að vera í inniskóm og vettlingum og hvoru tveggja færðu á staðnum hjá okkur. Taka skal skartgripi og úr af áður en farið er í meðferðina. Mikilvægt er að bæði einstaklingurinn og fatnaður séu þurr þegar farið er í meðferðina.

Hversu oft get ég farið í kuldameðferð?

Það er hægt að fara í kuldameðferð án áhættu allt að tvisar sinnum á dag en mælt er með 2-3 í viku. Sumt íþróttafólk fer allt að 5 sinnum í viku í kuldameðferð. 

Hver ætti ekki að fara í kuldameðferð?

Ófrískar konur, fólk með ómeðhöndlaðan háþrýsting, gangráð eða í krabbameinsmeðferð ætti ekki að fara í kuldameðferð. Aðrar frábendingar fyrir kuldameðferð eru nýlegir blóðtappar, brjóstverkur, grunur um hjartavandamál, hiti, almenn veikindi og opin sár. Að auki ætti ekki að nota kuldameðferð undir áhrifum áfengis eða annarra vímugjafa.

​Nánar um kuldameðferð

CTN cryotherapy