Einkaþjálfun hjá Greenfit
Einkaþjálfun hentar bæði þeim sem eru að koma sér af stað í hreyfingu og þeim lengra komnu. Áhersla er lögð á mikilvægi þess að framkvæma allar æfingar rétt og sérniðið prógram útbúið til að tryggja hverjum og einum sem bestan árangur. Einnig er í boði fyrir tvo til fjóra að vera saman í þjálfun.
Innifalið í einkaþjálfun hjá Greenfit er mæling á líkamssamsetningu (vöðvamassi, fitauprósenta og vatnsbússkapur) og gripstyrk.
Gígja Sunneva, þjálfari hefur umsjón með einkaþjálfun Greenfit.
Hún er með MSc í Heilsusálfræði og stafrænum inngripum frá Erasmus University í Rotterdam – einu fremsta háskólasetri Evrópu á sviði heilbrigðisvísinda og útskrifaðist með láði. Heildræn nálgun er í forgrunni hjá henni og brennur hún fyrir heilsueflingu. Í tímunum er lögð áhersla á rétt form, meðvitaða öndun, styrkingu hugar og – fyrst og fremst – gleðina við hreyfinguna. Gígja hefur þjálfað bæði einka- og hóptíma í 5 ár með frábærum árangri og góðum orðstír, ásamt því að eiga að baki langan og fjölbreyttan íþróttaferil.
Verð: 14.900 kr. fyrir 60 mín.