Viltu bæta styrk, úthald, jafnvægi og liðleika allt í senn?
Greenfit styrktarþjálfun er áhrifarík og skemmtileg þjálfun fyrir þær sem vilja læra að hreyfa sig rétt, virkja og styrkja djúpvöðva sem og aðra vöðva líkamans. Unnið er með ketilbjöllur, lóð, teygjur og eigin líkamsþyngd við þessar æfingar. Tímarnir byggjast upp á fjölbreyttan hátt þar sem hver og ein getur unnið eftir eigin getu í góðum og hvetjandi félagsskap.
Gígja Sunneva, þjálfari hefur umsjón með styrktarþjálfun Greenfit.
Gígja er með MSc í Heilsusálfræði og stafrænum inngripum frá Erasmus University í Rotterdam – einu fremsta háskólasetri Evrópu á sviði heilbrigðisvísinda og útskrifaðist með láði. Heildræn nálgun er í forgrunni hjá henni og brennur hún fyrir heilsueflingu. Í tímunum er lögð áhersla á rétt form, meðvitaða öndun, styrkingu hugar og – fyrst og fremst – gleðina við hreyfinguna. Gígja hefur þjálfað bæði einka- og hóptíma í 5 ár með frábærum árangri og góðum orðstír, ásamt því að eiga að baki langan og fjölbreyttan íþróttaferil.
Innifalið í námskeiði:
- Mæling á líkamssamsetningu (vöðvamassi, fituprósenta og vatnsmagn)
- Súrefnismeðferð
- Rauðljósameðferð
- Kuldameðferð
Verð: 29.900 kr./mán
Vertu með og skráðu þig hér.
Námskeiðið hófst 12. ágúst 2025 – Skráningin er enn opin.
Tímar: Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 09:00-10:00 og 12:00 – 13:00. Hægt að mæta á þeim tíma sem hentar hverju sinni.
Fjölbreytt þjálfun þar sem áhersla er lögð á aukinn alhliða styrk, jafnvægi og liðleika. Æfingarnar taka mið af þörfum hópsins hverju sinni þar sem hver og ein vinnur eftir eigin getu í góðum og styrkjandi félagsskap. Á námskeiðinu fá þátttakendur að kynnast þeirri vellíðan sem fylgir því að hreyfa sig og styrkja á bæði markvissan og skynsamlegan hátt.
Þessir tímar henta öllum, byrjendum jafnt sem lengra komnum.