Fyrsta skrefið að betri líðan, meiri orku og bættum lífsgæðum

Við hjá Greenfit erum sérfræðingar í að hjálpa fólki að kortleggja heilsuna, greina tækifærin og styðja einstaklinga til árangurs.
Með einföldu og áhrifaríku ferli færð þú innsýn í heilsuna þína – og fylgist með breytingum yfir tíma.

Af hverju að velja Greenfit?

Hvað er
efnaskiptaheilsa?

Efnaskiptaheilsa hjá Greenfit er einföld, vísindalega studd heilsuskoðun sem hjálpar þér að:

  • Fá skýr svör um líkama þinn: Blóðgildi, líkamssamsetningu, blóðþrýsting og fleira.

  • Taka upplýstar ákvarðanir: Með innsýn í eigin heilsu
    geturðu unnið að því að bæta lífsgæði þín.

  • Koma í veg fyrir framtíðarvandamál: Forvörn er lykillinn
    að betri heilsu.

Með einföldu og áhrifaríku ferli færð þú innsýn í heilsuna þína – og fylgist með breytingum yfir tíma.

Hvað er mælt?

Blóðmæling

Við mælum blóðsykur og blóðfitur, metum með þér stöðuna og hjálpum þér að læra á þín eigin gildi, setja markmið og ná árangri.

Blóðþrýstingur

Blóðþrýstingur hefur áhrif á hjarta- og æðakerfi, og með því að fylgjast með honum geturðu forðast alvarlega sjúkdóma eins og hjartaáföll og heilablóðfall. Regluleg mæling hjálpar þér að vera meðvitaður um líkamlega ástandið og gerir þér kleift að bregðast við áður en vandamál koma upp.

Líkamssamsetning

Í þessari mælingu færðu upplýsingar um vöðvamassa, fituhlutfall, kviðfitu og fleiri þætti. Þú færð þínar eigin tölur og samanburð við jafnaldra af sama kyni og getur lært að meta í hvaða átt heilsa þín er að þróast

Gripstyrkur

Það er áhugavert hve mikið forspárgildi gripstyrkur hefur um heilbrigði og langlífi. Við mælum gripstyrk beggja handa og berum saman við jafnaldra af sama kyni og líkur á langri heilbrigðri ævi.

Hvernig virkar þetta?

Greenfit er hér til að hjálpa þér að efla heilsu og vellíðan þína.

Heilsan á ekki að vera ráðgáta!

Fólk fær nákvæmar niðurstöður úr mælingunum ásamt fróðleik og hvatningu um leiðir til bættrar heilsu.

Við hjálpum við að skýra stóru myndina og setja raunhæf markmið sem auðvelt er að vinna að.

Taktu fyrsta skrefið í dag og uppgötvaðu hvað þú getur gert til að bæta lífsgæði þín og fjölga heilbrigðum æviárum.